Ég ákvað að taka bloggið fram á ný þar sem peter og tommi hafa ákveðið hið sama. Tómas ekki alveg í sínu röggsamasta.
Sumarið er komið, ég mæli með ´fótbolta hvað á hverju, jafnvel á Arnarnesi, ég hefði gott af smá brúnku svona undir það síðasta. Já nú fer annað árið bara að renna sitt skeið svona þýtur lífið áfram fyrir sjónum okkar. Hver dagur öðrum markverðari.Komst að því í dag að peningamálin standa höllum og alltaf virðist það koma ´mér jafnmikið á óvart og maður er svona hálfpartinn farinn að vantreysta sjálfum sér þegar maður segir við sjálfan sig"..já núna fer ég að spara, minnka við' hamborgarana o.s.frv..." Af hverju býðst engin til að múta mér fyrir e-ð, 300 milljónir ekki slæmt svona í aðra höndina. Prófin annars að nálgast og allt í besta með það, þá fer maður að taka á því af viti. Svo er námskeið að hefjast þar sem við lærum alvöru hluti, þ.e. hvernig allt fer fram á sjálfum spítalanum, læra á stuðtækin og í vor fær maður að fylgjast með alvöru aðgerðum. Já þá mun blóðið spýtast og hnífar fljúga.
Annars sigraði Guðfinnur eða Guffi eins og hann er kallaður kosningarnar og er því réttborinn konungur Háskóla Íslands og hann ber að hylla sem slíkan.....EINMITT. Hef trú á Pétri að ári, þá kemur hann sterkari inn reynslunni ríkari og gott væri ef hann myndi æla fyrir kosningarnar til að auka á athyglina.....djók í poka á kentenum... LIVERPOOL LIVERPOOL LIVERPOOL eru meistarar hvílík gleði hvílík mörk. Jæja frábært............
.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home