Kallinn kominn aftur, búinn að rífa sig upp úr depurðinni eftir tapið og áframhaldandi þátttöku hk í keppninni. Það má segja að fljúgandi kóparnir hafi verið skotnir niður í smáranum að viðstöddu daufu margmenni. Mér líður allavegana eins og ég hafi verið skotinn niður í líkamanum og eistunum hans Héðins Gilssonar líður örugglega eitthvað svipað, hahahahaaha, það var svo fyndið. Það er a.m.k. alveg víst að hann fer ekki í margar giljarfarir á næstunni, hahahahaha, sko ég get alveg verið fyndinn á kostnað annarra mann eistna. Þessa má geta fyrir áhugasama að pungur heitir scrotum á latínu og typpi heitir að sjálfsögðu penis, ekki pínus heldur penis. Leikurinn var þó ágætur, ég skoraði 6 en ekki 7 eins og ég lofaði. Maður leiksins var samt Kiddi markmaður sem stökk eins og tígrisdýr á antílópubráð sína þegar saklaus framari geystist upp völlinn í hraðaupphlaupi. Gott að sumir hafa ekki tapað frumstæðri drápshvöt forfeðra okkar Neanderdalsmanna. Einu sinni var einmitt maður sem æfði mark hjá okkur sem hét K.Neanderdals (maður), hann lyktaði þannig og hann var líka með Ólöfu, þó ekki Ólöfu frænku minni.
Endilega lesi þið opið bréf til Péturs Blöndals í Morgunblaðinu í dag frá formanni Sjálfsbjargar, talað frá mínu hjarta. Tala ekki meira um það þetta bréf segir allt.
James Bond er slök, en Ísland leikur stóran þátt í myndinni og í rauninni bjargar henni frá hruni. Þegar JB. geysist um mýrdalsveg á ósýnilega bílnum með penis og hægri hönd algerlega óbeislaða í anda íslensku náttúrunnar, það gerði margt gott fyrir sálartetrið. Hberry kom sterk inn með góða punnsara og fékk vel að kenna á Bond, James enda veit hann hvað hann vill. Úr hvaða mynd er þetta.: How would you like youre coffee...svar: black like my men. Sendið svör á e-mailið mitt, 14 heppnir fá frítt flug með Tomma yfir golfvöllinn í Vestmannaeyjum þar sem við sáum Ævar fyrst, þar sem hann kom aftan að mér er hann renndi sér nakinn klofvega niður daggarþakta hlíðina. Já hver man ekki eftir því. Nú aðrir 14 fá ókeypis blikatattú hjá Hleranum og Braga Brynjars og restin fær að máta hnéspelkuna hans Magga Blöndal og fær einnig ókeypis myndatöku af því þegar ég olli H.Gilssyni ókeypis pungáverkum.
Ég virðist allavegana alveg þurrausinn hvað varðar menningar- og akademískar umræður....við gætum rætt aðeins um fríverslun á 21.öldinni og markaðssetningu kvikmynda í 3.heiminum en það verður að bíða betri, þeir sem hafa e-ð um það að segja geta auðvitað sent mér e-mail á kristinh@hi.is
Stutt í próf, gangi ykkur öllum vel......


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home