Kjósið Sírann og fáið ríkulega tilbaka í formi heilags anda, kærleika og heiðingjafríss samfélags. Hallelúja syngið bræður og systur.
X-bé nýtt þjóðfélagsafl í Reykjavík fer mikinn. "Við höfuð orðið varir við gífurlegan meðbyr síðustu misseri og finnum góðan samhljóm með fólkinu í bænum og greinilegt er að við erum að ná góðri lendingu með öfluga sveit liðsmanna sem vilja byggja upp góða og fallega Reykjavík á komandi árum með traustan leiðtoga í broddi fylkingar" sagði Jabba höfuðsmaður X-bé. Að því loknu át hann fylgdamær sína sem hann hafði bundið við staur með keðju um hálsinn. 'otrúlegur spjátrungur.
X-bé hafa lofað að gefa öllum Reykvíkingum Toyota Landcruiser 2007 módel ef þeir ná inn 2 mönnum, jafnframt hefur Jabba lofað að éta lifandi hross í beinni útsendingu í Íslandi í dag á 365 þar sem Inga Lind mun fara mikinn enda barmfögur kona.
Kollegi Jabba, Smjagáll sem fer fyrir X-bé sem kallast framsókn í Kópavogi hefur kallað Kópavogsbúa hálfvita. Í leiðara Skessuhorns tímarits Borgnesinga segir Smjagáll, "...þetta er óþolandi, þeir sem kjósa mig ekki eru hálfvitar...", þetta er talið mikið reiðarslag fyrir Kópavogsbúa enda höfðu 95 % íbúa þar í bæ hugsað sér að kjósa Smjagál bæjarstjóra. Hann hefur lofað öllum Kópavogsbúum fríu permanenti í 12 mánuði auk þess sem hann ætlar að byggja brú yfir Garðabæ til Hafnafjarðar. Það er talið muna leysa gífurlegan umferðarvanda í Kópavogi.
Pétur Blöndal gifti sig á níunda tímanum í kvöld. Þetta er 4 gifting hans á 5 dögum "þetta eru allt drottningar" sagði Pétur í geðshræringu fyrir utan Kefas-kirkjun í elliðahverfinu. Ástæðu þessa hátternis er talið mega rekja til stemingsmyndunar á Óliver undanfarnar helgar og vantrú Péturs á kynlífi utan hjónabands, það er hugsanlega tengt uppeldi eða áhrifum sjónvarps.
Þá koma fréttir fyrir vanvita og vitleysinga:
Talið er að veturinn sé snemma á ferðinni í ár.
Jón Ásgeir heitasti gaurinn skv. Der Spiegel.
Björn Bjarnason keypti sér leðurjakka í Spútnik síðastliðinn miðvikudag.
Þýskur ferðamaður finnst lifandi inn í Snæfellsjökli, talinn 700 ára gamall.
Knattspyrna: Trínídad og Tóbacco lélegast knattspyrnulið sem spilað hefur í lokakeppni HM
Knattspyrna: Henry hinn franski áfram í fótbolta hjá Arsenal
Stjórnmál: Halldór er forsætisráðherra Íslands
Stærðfræði: Margföldunartaflan ekki eins flókin og áður var talið
Jæja nóg af þessu
farið með friði
sírann kveður úr borgarnesi
2 Comments:
Síran orðinn lélegur í blogginu???
Er það kiddinn eða???? Koma svo Flame!!!
refsum´s disease
Skrifa ummæli
<< Home