miðvikudagur, mars 01, 2006

Síra Hut hut hut. Síra hut hut hut.

Það er enginn annar en Sírann, ójá sírann sem kemur á brokkinu niður hlíðar æsku og vísidóms. Á fráum fótum trúlegs afl sem í brjóstum ykkar býr er ég komin tilbaka að dæma lifendur og dauða, suma lifendur mun ég dæma til dauða fyrir fjölkyngni og drýsilhátt en öðrum mun ég skenka í glas og kalla bræður mína í andlegu algleymi þeirrar tilfinningar að vera lifandi frjáls sál í heimi spillingar og djöfullegs eilífðarkappahlaups við klukkuna. Já sannlega segi ég yður lítið ekki í vestur, austur eða til vinstri eða hægri eftir lotningu og uppvakningu, lítið í augu nágrannans og ykkar sjálfra og sjá sírann býr innra með ykkur allt til enda lífs og veraldar.

Friður sé með yður

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

það var mikið..DÝRÐ SÉ SÍRANUM!!!

9:30 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Söfnuður: Og með þínum anda

3:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Guð hefur yður í sinni náð. Það er erindi til fagnaðar þér haldi uppi bloggi, annars myndi ég aldrei hafa hugdettu um hvað sé að drífa á daga þína. Svo upplýsandi er hún.

8:58 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home