miðvikudagur, júní 27, 2007

Í fréttum er þetta helst; Breiðablik 3 HK 0 og Íran tekur upp skömmtun á eldsneyti innanlands.
Frábær stemning á vellinum, níðsöngvar og gleðisöngvar , lúðrasveit, brakandi bongóblíða, lélegur dómari, Princinn á fullu swingi og Casper betri en enginn. Ég hef sjaldan eða aldrei skemmt mér jafnvel á leik innanlands sem utan. Menn eins og Úlfur T.T., Vignir Þ.V., Mysu-Kjartan, Stjáni Bingó úr Ópinu, Andri Þ.L., Hermann Hermann Hermannson og Friðjón Fannar Hermannson voru mættir, aðrir voru fjarverandi. Suðurhluti gömlu stúkunnar var skírður Kóp og munu allra hörðustu stuðningsmenn Breiðabliks sitja þar í framtíðinni en ekki ég, ég ætla í nýju stúkuna þegar hún verður tilbúinn á næsta ári.

Já þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur af vherju ég er ekki búinn að segja "..jæja langt síðan ég hef bloggað..." en í sannleika sagt þá eigi þið ekki að þurfa á bloggi frá síranum að halda, hann er með ykkur í hjarta og anda, allt til enda veraldar.
Ég er allavegana útskrifaður úr læknisfræði og er byrjaður á kandidatsárinu mínu, verð í Keflavík út águst og á LSH fram í maí 2008. Útskriftarheiti mitt var candidatus medicinae og vil ég að þið kallið mig það og ekkert annað héðan í frá.....

Gangið á guðsvegum...

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Í fréttum er það helst að Sírann hafi bloggað, mér leið furðuvel í dag hélt að það hefði einöngu verið vegna þess að Breiðablik sannaði það enn og aftur í gær að það er aðeins eitt stórlið í Kópavogi. En nei Sírann bloggaði og mér leið mikið betur fyrir vikið, eða ég trúi því allaveganna! Nú er bara að vona að bloggandinn haldi áfram að koma yfir Sírann...

7:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju með áfangann Doktor flame, dr. síra og séra doktor :D

3:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

candidatus medicinae skal það vera. Það er gaman að vera BLIKI!!!

4:21 e.h.  
Blogger Kristinn Logi said...

Ég kýs að kalla mig

Rev. Dr. Kristinn Logi hallgrímsson

1:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

This info is worth everyone's attention. How can I find out more?
Here is my weblog ; how to lose weight fast

12:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hurrah! At last I got a webpage from where I know how to in fact obtain
useful data regarding my study and knowledge.

Here is my weblog - Generateur De Code PSN

11:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home