miðvikudagur, desember 14, 2005

Hver svífur þarna eftir Austurstræti
á ótrúlega stórum skóm
Já það er síra öngum öðrum lík
það er hann síra Reykjavík
Sem svífur þarna eftir austurstræti
á ótrúlega stórum skóm.

Smávísa svona í upphafi, vonandi ekki of heiðið. Þakka góðar gjafir sem hafa borist.

Margaret Thatcher liggur á sjúkrahúsi í Bretlandi eftir alvarlegt kast fyrr í dag. Ekki er vitað af hvaða orsökum kastið var en jafnvel er talið að þetta sé kast af óþekktum orsökum; a throw of unknown origin: TUO. Tony Blair tók við af Margaret þegar ljóst var að hún skildi leggjast inn. Jafnvel var talið að John Major myndi fá hlutverk Thatcher en allt kom fyrir ekki.

Nú hefur það loks verið staðfest að George Best er látinn. Læknar staðfestu það nú fyrr í dag. Banamein hans er óþekkt en jafnvel er talið að sjaldgæf hitabeltisbaktería sem ber nafnið trophical baktería of unknown origin hafi valdið heiftarlegri áfengisfíkn sl. 30 ár, ekki eru menn á eitt sáttir við þessa niðurstöðu og telja frekar að Best hafi látist í bílslysi.

Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að Björn Bjarnason segi af sér. Ástæðan er talin vera vegna útlits Bjarnar. Ingibjörg Sólrún hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem meinar fólki sem lítur ekki út fyrir að vera hefðbundinn homo sapiens að starfa sem þingmenn. Björn sem löngum hefur verið sagður líkjast hornhveli eða homo habilis tekur létt í þetta og hefur boðist til að nota hauspoka á þingi. Jafnvel er talið að fleiri alþingismenn þurfi að passa sig í kjölfar þessa frumvarps.

Meðlimir í flokki Harðlínuféminista Íslands hafa mótmælt stuðningi forsætisráðherra við sigri Unni Birnu Vilhjálmsdóttur fegurstu konu í heimi. Hún er þar með orðin fegurri en Angelina Jolie ,Scarlett Johansson ,Charlie Theron og Chelsea Clinton. Halldór hefur fengið morðhótanir í þrígang og hefur neðanjarðarlestarkerfum borgarinnar verið lokað af ótta við hryðjuverkum. Jóhann sem er formaður þeirra harðlínumanna málaði Jón Sigurðsson bleikan og klæddi í ballerínubúning á sjötta tímanum í dag og hrópaði á meðan "Jón var engin kerling en Halldór er svikari við málstað kerlinga", ekki mældust þessi orð vel fyrir enda þykir um óvenju lélegt orðaval að ræða, sérstaklega þegar horft er til þess að Jóhanna þarf að eyða næstu tveimur jólum í fangelsi.

Jæja takk fyrir. Ég vill fá amk. 4 komment áður en ég blogga aftur
amen

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

líkist Björn örugglega homo habilis en ekki homo www.habil.is ?

11:59 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heil þér Síra, þökk sé þér eru þágufallssýki,heiðni og annar viðbkóður á undanhaldi. Mætti þó einum andsetnum á göngu minni Melrakkasæettru þar sem að ég var bera út boðorð Sírans. Þannig að betur má ef duga skal.

Megi almættið vaka yfir þér ávallt!

4:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ÉG BIÐ YÐUR OG ALMÆTTIÐ AFSÖKUNAR Á SÍÐUSTU FÆRSLU MINNI. MIG GRUNAR AÐ HÚN UNNUR SEM AÐ SAMSTARFSKONA MÍN SÉ FJÖLKYNGIN OG SÉ AÐ REYNA SNÚA MÉR YFIR Á MYRKU HLIÐINA. EN ÞAÐ MUN EIGI TAKAST, ÞVÍ SJÁ ÞÚ ERT MEÐ MÉR ALLT TIL ENDA VERALDAR.

www.radzinger.de

4:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home