miðvikudagur, júlí 27, 2005

Hallelúja og heysanna hósanna sanna sanna það, það er sumar í dag og ekkert skítasvað.

Styttist í ferðahelgi heiðinna manna og frídag verslunarmanna hahahahahaha.....nei án djóks brátt er liðið ár síðan vagla-Valgeir kom inn í líf mitt og varð einn með Guðsótta mínu og veraldleika sem dýrlingur kristinna og böðull annarra. Þessu ber að fagna og hvað er betra enn að drekka blóð hreinna meyja og slátra geithöfrum. Það verður hins vegar ekki gert þar sem við lifum í siðspilltu umhverfi þar sem pör ganga saman í sæng án þess að njóta velvildar og blessunar Guðs og sona hans tveggja: Jesúms og sírans.

Annars er það að frétta af véfréttinni að sólin mun hverfa inn í Júpíter innan skamms og ganga í eitt með sólkerfinu. Þar með eru dagar okkar taldir mínir kæru vinir og safnaðarmeðlimir, sjálfur hef ég hafist handa við að safna birgðum og byggja neðanjarðarskýli undir Landspítalanum fyrir þennan svokallaða ,,dómsdag" eins og ég kýs að kalla hann. Já sólarvindar mun þeysast um nærlæg milljón ljósár og svíða stjörnur og halanegra, tré munu gráta og íkornar sviðna, búðum verður lokað og gjaldmiðlar alheimsins felldir úr gildi á einni náttu. Þetta hefur véfréttin sagt mér, það er skrifað í stjörnurnar. Hún sagði mér einnig að það verði rigning um helgina og það er útsala á svínahakki í bónus út mánuðinn:allt á að seljast.

Ég virðist hafa gleymt loka kapítúla,hann kemur á morgun en jú Magnea takk fyrir góð orð og bráðskemmtileg comment, mætti vera ítarlegri með betri hemildarvinnslu en Ok. Bindin 14 koma út núna í lok nóvember, þau verða gefin út af Forlaginu og kosta á bilinu 2-300.00 saman í fallegri gjafaöskju ásamt nivea sápustykkjum og baðhettu frá Mari Mekko.

Gangið á glæstum gullvegum Guðs og forðist steingrýtta stíga Satans.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home