fimmtudagur, september 08, 2005

Hallelúja.
Safnist saman lömbin mín og takið postullegri blessun. Síran svífur inn á internetið á silkifögrum lendum trúar sinnar og siðprýði. Sem ég tala við yður á ný vil ég minnast á þátt um Medici ættina á RÚV, í dag var sagt frá siðaskiptunum og innrásinni í Róm þar sem mótmælendur stráfelldu kaþólikka og steyptu Medici mönnum af stóli í Flórens. Ég fann hvernig Leó 10. sem þá var Páfi átti undir högg að sækja, hann er eins og ég verð dýrlingur, hann þurfti ekki að kaupa sér syndaaflausn.
Ég vil minna á að ég er að selja syndaaflausnir fyrir 10 evrur stk. og 4 fyrir 5 tilboð, á www.syndaaflausnir.is/googleiseverything@earth34°76° allt á að seljast, engum vísað frá, svona er internetið altaf að uppgötva mann og maður það ( internetið).

Annars er ég farinn að taka á móti börnum hægri vinstri í námi mínu til sérlegs embættismanns sem Candidatus Medicus, núna telst ég Studiosus Medicus. Þeir sem vilja freista þess að fæða barn undir handleiðslu síra og studiosus medicus hafið samband á kommentkerfið og skilið eftir helstu persónuupplýsingar og ég mun gæta þess að fyllsta trúnaði verði gætt.

Ég hef legið á bæn eftir ákall kollega Úlfs um kristilega upplyftingu og frið, með von um trúarlegt frelsi og guðsótta bið ég þig ei að óttast því að þitt er ríkið mátturinn og dýrðin að eilífu amen.
Kór:AMEN

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home