föstudagur, september 16, 2005

Sírann skríður úr híðinu enda margt stórra frétta og skammt stórra höggva á milli.

Britney hefur getið barn með keisaraskurði. Hún skilur þar með eftir ör á leginu sem getu valdið fylgikvillum síður meir í formi skyndilegrar þungunar, þorstlætis, depurðar, ferðaveiki og ótímabærum símtölum frá almættinu í formi hreinnar geðbilunar. Hún mun að öllum líkindum skíra barnið inn í söfnuð Las Vegas, Nevada og skíra soninn Emanúel í höfuð sonarins og höfuð trúar Lúthers og kristinna manna.

Nú á fjórða tímanum í dag mátti sjá á fjórða tug herþota fljúga inn skerjafjörðinn og lenda á braut A360° á reykjavíkurflugvelli. Hér var um að ræða flugher Færeyja sem eru stórhuga og ætla sér landvinninga á Íslandi. Nú þegar hefur enginn fallið í átökum þar sem um friðsamelga innrás og yfirtöku lýðveldisins Íslands er að ræða. Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt samstarf en að öllum líkindum munu harðorð bréf og greinar birtast í Morgunblaðinu á næstu dögum. Listamenn hafa safnast saman upp á Mosfellsheiði og myndað knúshring þar sem ætlunin er að minna á ástina og lífið og skerðingu frelsins til að tjá sig í nýtilkomnu einræðisríki, sem er einmitt undir oki Rojki Brundslatta eins og er. Dansarar úr dansflokki alþýðunnar ætla að dansa eftir þjóðvegi 1 að Skagaströnd og setjast þar að og Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá Val ætlar að spila maraþonknattspyrnu til að safna pening sem ekki er víst hvernig á að bola nýjum einræðisherra Íslands frá völdum.
Allt eru þetta liðir í verkefninu: Umbætur í þágu þjóðar. Ragnar Stefánsson eða Ragnar skjálfti er einn af höfuðpaurunum í þessu vonlausa verkefni sem mun jálfsagt kosta fjölda manns höfuðið að viðstöddu margmenni á Ingólfstorgi seinna í næstu viku.

Annars er það að frétta að villt eldislúða herjar nú að íbúum Jan Mayen og hefur hagstofa ESB spáð útrýmingu á kynstofni þeirra á næstu dögum.

Annrs er ég í góðum andlegum fasa og vel stemmdur. Ég er ánægður með þá tengingu sem ég hef átt við almættið undanfarið og tel mig góðan kost þegar velja á Jesú endurfæddan, þó hann sé broðir minn, muniði Biblían, Lúkas 13;5 "..og sjá sírann er í húsum yðar, allt til enda veraldar..."

Rétt til getið Pétur. Ég fastaði 11.september og málaði rauðan kross á ínúðir múslima hérna á stúdentagörðum. Ég hlaut neyðarhúsfund í staðinn en mætti á hann í hempu með stóran kross og tendruð kerti. Þannig var málið úr sögunni og terroristum var úthúsað.


Eigið kristilega helgi. Messa hjá mér á sunnudaginn. Senn líður að aðventu. Takið spíritisma í sálu ykkar og vér munum hittast á fundi föður vors er yfir líkur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home