fimmtudagur, desember 01, 2005

Komið þið sæl. Takið postullegri blessun, etið líkama krists og dekk blóð hans hið snarast því sírann mun ríða út í hérað um jólin og verður ei meðal yður að útdeila oblátum og altarissakramenti.
Ég hef tekið við hrossi sem ég hef skýrt Eimreið Drottins, á fákinum mun ég ríða um hérað Borgnesinga sem nær frá hvalfirði og upp á miðja Holtavörðuheiði en þar er fjölkunnugt um að lýtast og sitt sýnist hverjum.
Framundan er að fjárfesta í nýrri hempu, kaupa stóran gullkross og kórónu og 35oo biblíur því sá er fjöldi borgnesinga og aldrei að vita hvern þarf að kristna, afheiða eða jafvel brenna.
Ég hef ákveðið að reisa kirkju þar sem nú er ferstikla.

Þess má geta að Gísli Einarsson hálffrændi Gilzeneggers, fréttamðaur býr í borgarnesi og hefur hann boðist til að hýsa mig yfir hátíðirnar. Aldrei að vita nema Alexander Ermolinski körfuboltasnbillingur taki mig upp á arma sér og kenni mér eitthvað um lífið og tilveruna.

Öllum er frjálst að mæta í heimsókn en ég mun dveljast þar í 9 nætur frá 23.des - 2 .jan.
Ég mun halda af stað á Eimreið Drottins frá Kópavogskirkju og draga 4 heiðingja, sem tjóðraðir verða við hestinn, fyrstu kílómetrana, þeim verður síðan drekkt í kópavogssundlaug af séra Ægi og krökkunum hennar Tótu í skólakór kársnes sem mun syngja "nóttin var svo ágæt ein" á meðan. Aldrei að vita nema gamlir jaxlar úr kórnum kíkji við og dreifi piparkökum og svaladjús.

Þá er það komið. Próflestur kallar. Lifið í friði við almættið, elskið náungann og leggið fæð á heiðingjann.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég sá Razinger Páfa segja samkynhneigðum stríð á hendur. Hafðir þú ekki hönd í bagga með það?

5:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home