þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Góða helvítis kvöldið og afsakið að ég skuli tala til Satans. Hér talar lóðareigandinn Síra. Ég hef fengið úthlutað lóð við vatn Elliða. Þar mun ég reisa kirkju háa og frelsa þennan merka hluta Kópavogs sem svo lengi hefir verið undir Heiðni.

Gísli Marteinn er fallinn. Síðasta vígi harðlínu fasista og öfgakratahatara er fallið. Turn réttlætiskenndar hægri stefnu og ríkisdæmi þeirra vellauðugu er á enda runnið. Heil sé nýkjörnum ráðunaut Vilhjálmi og vonum að honum endist ævin út kjörtímabilið, ekki það að ég sé að hóta honum, maður veit bara aldrei hvað bitur maður í bræði sinni gjörir.

Þökk að sinni.
Sírann kveður.
Lifið sátt í góðu samlyndi við góða og veltrúaða.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ maggý hérna, fékkstu í alvöru úthlutað lóð á Elliðarárvatni?? Eða ertu bara eitthvað að steypa??

Frá Firði er kenndur er við Tálkna.

12:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home