föstudagur, desember 02, 2005

Hleypum nýju lífi í latínukunnáttu í kirkjunni og kennum hana í tengslum við helgisiði hennar, þetta mælti hans heilagleiki en þó undirmaður minn Radsinger páfi fyrrum undirforingi hitlersæskunnar og nú heiðarlegur andstæðingur samkynhneigðra skv. Púritananum. Ekkert vil ég segja um það en Radzinger sagði persónulega við mig að honum væri ekkert um fjölgyðistrú og saurlífi gefið hvað sem það nú þýddi. Ég hef persónulega ekkert á móti samkynhneigðum, margir af mínum bestu vinum og ættingjum eru samkynhneigðir eða af erlendu bergi brotnir. Ég skal ekki segja hvað heilagur bókstafur segir um það en orð mín gkoma frá drottni og sjálfur er ég heilagur þannig að ég segi það sem ég vil!!

Britney Spears leitar nú logandi ljósi að leið til að bjarga hjónabandi sínu sen er á leiðinni í hundana, hún segir Kevin eiginmann sinn tala of mikið undir rós en sjálfri finnst henni hún fara eins og köttur í kringum heitan graut þegar talið berst að meintri krakkfíkn hennar. Það má með sanni segja að sjaldan falli eplið langt frá eikinni því ber er hver að baki nema bróður eigi í nótt og er þar með vísað í fíkn Jessicu Simpson sem felst í þágufallssýki og ótímabærum sjálfgerðum brjóstastækkunum, en eins og mælt var við manninn enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og er ég þá að tala um Söru Jessicu Parker sem aldrei fékk jólagjafir þegar hún var lítil því hún þótti svo ljót.

Jæja þökk sé mér fyrir að veita yður predikun á 3.degi sjálfur mun ég stíga til himna eftir 3 daga og koma við í heljum í millitíðinni, frá himnum mun ég svo dæma lifendur og dauða.
síra:Friður sé með yður
söfnuður:og með þínum anda

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

öh, af hverju ertu að setja fólk sem er af erlendu bergi brotnu undir sama hatt og samkynhneigða?

1:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

vegir drottins eru órannsakanlegir mikael.

3:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home