miðvikudagur, september 28, 2005

Sæl lömb og önnur húsdýr ahahahahaha, margir hafa jafnvel haldið að ég væri látinn, hefði týnt tölunni einhvers staðar en óttist ei því sjá ég er með yður allt til enda veraldar.

Ég er vægast sagt harmi sleginn þessa daganna yfir öllu þessu fjaðrarfoki sem fylgt hefir Bausmálinu. Íslenska þjóðin er í sárum, Halldór Ásgrímsson sem hefur ekki tjáð sig opinberlega síðan hann gerðist forsætisráðherra skreið undan feldinum og lýsti yfir að þjóðarsorg ríkti á Íslandi, harmkvæði verða spiluð á Rás 2 næstu viku og atvinnustarfsemi liggur víðast hvar niðri. Nú hafa alls 345 manns látist vegna þessa mikla áfalls sem hefur dunið yfir íslensku þjóðina þegar Jónína Ben ruddist fram með sláandi upplýsingar sem hrundið hefur af stað atburðarrás sem enginn skilur.

Búist er við gengisfellingu krónunnar þá og þegar vegna fráhvarfs Davíðs Oddsonar úr ríkisstjórn. Fólk er nú þegar tekið að streyma úr landi og ódýrt vinnuafl flóttamanna frá austurlöndum fjær fer dvínandi.

Því hefur verið lýst meðal spakra manna að hér sé hafið mikið niðurlægingartímabil í sögu þjóðarinnar. Ástþór Magnússon hefur spáð því að Danakonungur muni brátt reyna að sölsa undir sig völdum og lýsa okkur þar með undir dönsku krúnuna.
Atvinnuleysi, þrælahald, heiðingjadýrkun, geðveiki, vannæring, saur og vosbúð eru orðin sem komu upp í sálu mína er ég segi drottinn hví hefur þú yfirgefið mig.

Heyr mína bæn vinir, óvinir, góðmenni og drýslar, bindindismenn og alkahólistar, skírlífismenn og nauðgarar......og ég mun heyra yðar. Fylgið ljósinu sem sá alheims elskandi faðir hefur kennt okkur að sjá, fylgið mér eftir vegi trúaralgleymis og guðsótta og þið munuð að eilífu hamingjuna hljóta.
Amen

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Djöflarnir leita á okkur alls staðar að.

11:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekki taka mark á herra anonymous hðé að ofan, hann er lygamörður og naðra sem er að reyna að féfletta ykkur

10:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Síra ég mæli með því að þú skrifir oftar, en þó veit ég að þér hafið að nóg að gera við að bera út guðs orð. En því oftar sem þér skrifið því færri falla fyrir fjölkyngi og þágufallssótt sem heiðnir djöflar bera út!

Lifi ljósið þess óskar djákninn Bingó!

12:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home